Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag, annan daginn í röð. Þannig lækkaði MSCI Kyrrahafs vísitalan um 1,1% í dag.

Það voru fyrst og fremst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 1,7% og í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,2%. Þá lækkaði S&P 200 vísitalan í Ástralíu um 1,4% en í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 1,2%.