Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag, annan daginn í röð og voru það helst fjármála- og orkufyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði í dag um 1,1% sem er mesta lækkun á einum degi frá því um miðjan apríl.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 1,1%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,6% og í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 1,9%. Í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan aftur á móti um 1%.