Hlutabréf lækkuðu örlítið í Asíu í dag og er það í fyrsta skipti í þrjá daga og voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkun dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.
MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði um 0,1% en lokað var í Japan vegna frídags þar í landi.
Í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 0,3% og í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 0,1%.
Í Ástralíu hins vegar lækkaði S&P 200 vísitalan um 0,5%.