Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag. Nikkei vísitalan lækkaði um 4,5% í Japan og hefur ekki verið lægri í fimm vikur að því og er þetta í fimmta skipti á þessu ári sem vísitalan lækkar um 4% eða meira. Þetta kemur fram á Market Watch.

Í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 3,1%. S&P/ASX 200 vísitalan í Ástralíu lækkaði um 3%,  í Singapúr lækkuðu gengi bréfa um 2,9% og á Indlandi lækkuðu bréf um 3,1%.

Hins vegar hækkuðu bréf í Kína um 2,1%.