Hlutabréfamarkaðir lækkuðu í Evrópu í dag, nú fjórða daginn í röð en að sögn Reuters stíga fjárfestar varlega til jarðar í kjölfar neikvæðra uppgjöra stórfyrirtækja.

FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur Evrópu, lækkaði um 0,8% og hefur nú lækkað um 8% það sem af er ári eftir að hafa lækkað um 45% á síðasta ári.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,2%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 0,7% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 0,6%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 0,9% en í Sviss hækkaði SMI vísitalan hins vegar um 0,5%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan aftur á móti um 0,1%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 0,8% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 1,3%.