Hlutabréf í Evrópu lækkuðu nokkuð á markaði í dag eftir að hafa hækkað um 3,5% í gær. Seðlabanki England hækkaði verðbólguspá sína í dag og reiknar með að hún fari yfir 2% markmiðið að sögn Bloomberg.

FTSE 100 í London lækkaði um 0,5%, DAX í Þýskalandi og IBEX á Spáni stóðu nánast í stað en CAC í Frakklandi hækkaði um 0,3%.