Hlutabréfamarkaðir í Evrópu lækkuðu í dag þó heldur hafi dregið úr lækkuninni seinni part dags.

Eins og áður hefur komið fram er það fyrst og fremst óvissa sem ríkir í kringum svokallaðar björgunaraðgerðir bandarískra yfirvalda sem veldur lækkun dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar.

FTSEurofirst 300 vísitalan lækkaði í dag um 1,5% en vísitalan lækkaði um 2,1% í gær og hafði um tíma í dag lækkað um rúm 2%.

Það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Reuters. Þannig lækkaði UBS um 7,9%, Royal Bank of Scotland um 5,2% og Barclays um 4,2% svo dæmi séu tekin.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,9%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 2% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 0,6%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 2% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 1,2%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 2,5%, í Osló lækkaði OBX vísitalan um 1,7% og í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 1,8%.