Hlutabréf hafa lækkað það sem af er degi í Evrópu eftir að hafa hækkað fjóra daga í röð. Núna kl. 9:00 að íslenskum tíma hafði FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 0,6% en vísitalan hækkaði um 2,5% síðustu fjóra daga.

Olíuverð heldur áfram að hækka og segir Reuters fréttastofan það helst stafa að áhyggjum manna af lélegri birgðastöðu ríkja.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 1%, í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 0,8%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 0,7% og í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 1%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vístalan lækkað um 0,9% og í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 0,8%.