Hlutabréf hafa lækkað í Evrópu það sem af er degi og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 0,7% í morgun.

Það eru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða lækkanir dagsins en í morgun tilkynnti breski bankinn Barclays um afskriftir upp á tæpa tvo milljarða dala sem haft hefur áhrif á aðra banka í Evrópu að sögn Reuters fréttastofunnar. Barclays hefur lækkað um 2,5% á mörkuðum í morgun.

Í Lundúnum, Amsterdam og Frankfurt hafa FTSE 100, AEX og DAX vísitölurnar lækkað um 0,2 – 0,25% en í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 0,4%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan hins vegar hækkað um 0,2% og í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 0,5%.