Hlutabréf í Evrópu hafa lækkað það sem af er degi og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 0,9% í morgun. Lokað er fyrir markaði í Bretlandi í dag vegna lögbundins frídags.

Í Amsterdam og Frankfurt standa AEX og DAX vísitölurnar í stað en í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 0,4%.

Þá hefur OMXC vísitalan í Kaupmannahöfn hækkað um 0,3% en í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 0,8%.