Hlutabréfamarkaðir lækkuðu í Evrópu í dag eftir að hafa hækkað síðustu þrjá daga en að sögn Reuters fréttastofunnar voru almennt lítil viðskipti á mörkuðum.

FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfamarkaði í Evrópu, lækkaði um 1,8%..

Það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins. Þannig lækkaði UBS bankinn til að mynda um 9,7% eftir að svissneskir fjölmiðlar greindu frá því að bankinn myndi þurfa að afskrifa um einn milljarða svissneskra franka á fjórða ársfjórðungi síðasta árs.

Þá lækkaði bankar á borð við Banco Santander, Barclays, Credit Suisse, Deutsche Bank og HSBC á bilinu 2,5% - 6,3%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 2,4%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 1,9% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 2%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 2,2% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 2,7%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 0,9%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 3,2% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 2,8%.