Uppboð fór fram á atvinnulóðinni Krókhálsi 7a í apríl. Hæsta boðið í lóðina var 48.900 kr. á byggðan fermetra. Reykjavíkurborg hefur fram til þessa úthlutað lóðum og úthlutunarverð verið 35.000 kr. á byggðan fermetra.

Uppboðsverðið er því 39,7% hærra en úthlutunarverðið. Nánast allar atvinnuhúsalóðir í borginni hafa verið seldar.