Hafrannsóknastofnun hefur fengið í hendur bergmálsgögn af mælum þriggja skipa sem mældi loðnugöngu við Papey og er það bráðabirgðamat að þarna sé nálægt 90.000 tonn af loðnu á ferðinni.

Stofnunin telur, út frá fyrirliggjandi gögnum, líkur á að umrædd loðnuganga sé sú sama og var mæld út af norðausturhorninu fyrr í mánuðinum. Þessar niðurstöður gefa ekki tilefni til breyttrar ráðgjafar.

Þetta kemur fram í frétt frá stofnuninni.

Fram hefur komið í fréttum að loðnuskipin Börkur, Polar Amaroq og Hákon voru á loðnumiðunum og kortlögðu fremsta hluta loðnugöngu skammt undan Papey á sunnudag.

Um var að ræða stóra hrygningarloðnu, en á Hafrannsóknastofnun er nú verið er að vinna loðnusýni frá svæðinu. Takmörkuð yfirferð veiðiskipa á sunnudag er sú fjórða í röðinni á árinu, engin hinna þriggja fyrri sem allar voru heildstæðari gaf tilefni til ráðgjafar um að opna fyrir veiðar.

Hafrannsóknastofnun fylgist áfram með þróun á loðnumiðum í samráði við útveginn og mun fara yfir skráningar Polar Amaroq sem er áfram á miðunum jafnharðan og þær berast.