Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað er loðnufrystingu lokið þessa vertíðina. Næst á dagskrá er því hrognatakan og bíða skip fyrirtækisins þess að loðnan verði tilbúin til hrognatöku.

Síldarvinnslan greinir frá þessu.

„Börkur NK er á Breiðafirði, Beitir NK á leiðinni vestur fyrir land og Bjarni Ólafsson AK bíður átekta í höfn syðra“, segir á vef fyrirtækisins.

Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, segist ekki vita hvenær veiðar á hrognaloðnunni muni hefjast. Hálfgerð bræla sé á Breiðafirðinum.

„Í augnablikinu höfum við líka lítið séð en það mun breytast þegar skipum fjölgar hérna og veðrið lagast. Veðrið á að ganga niður í dag og ég held að eigi að verða fínt veður á morgun. Síðan er það bara spurningin hvort loðnan er tilbúin til hrognatökunnar,“ er haft eftir Hálfdan á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Þar segir einnig að grænlenska loðnuskipið Polar Amaroq, sem frystir aflann um borð, hafi landað fullfermi sex sinnum það sem af er vertíðinni.

„Við erum núna í sjöunda túr og það hefur allt gengið eins og í sögu. Vinnslan hefur gengið vel og veiðin verið góð. Við fórum út klukkan sex í morgun og erum núna suðvestur af Garðskaga að leita,“ segir Ólafur.