Atvinnuvegaráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknarstofnunar ákveðið að heimila veiðar á 120 þúsund tonnum af loðnu í viðbót við áður útgefnar aflaheimildir.

Fram kemur í tilkynningu frá 21. janúar til 7. febrúar var rannsóknaskipið Árni Friðriksson við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins frá miðjum Austfjörðum, norður um og allt að Norðvesturmiðum.  Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á þessum mælingum sýna að alls mældust 873 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Að viðbættum afla ársins fram að mælingum og náttúrulegum afföllum er áætlað að stærð veiðistofnsins þann 1. janúar hafi verið um 990 þúsund tonn.

Áður en mælingar hófust þann 22. janúar var búið að veiða um 100 þúsund tonn á vertíðinni 2012/2013.