Íslensk skip fá að veiða 100.315 tonn af loðnu en tilkynnt var um heildaraflamark á loðnuvertíðinni í gær og má veiða 173 þúsund tonn. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í dag.

Þetta er mikill samdráttur frá árinu á undan þegar Íslendingar veiddu um 400 þúsund tonn á fiskveiðiárinu. Þá var kílóverð á loðnu um 80 krónur og fengust því um og yfir 30 milljarðar. Í ár er hins vegar búist við að kílóverð verði hærra eða um 100-120 krónur á kíló sem gæti skilað um 12 milljörðum.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, er ekki sáttur með að aflinn skuli vera svona lítill. „Það verður að segjast eins og er að þetta eru vonbrigði. Við vonuðumst eftir meira en þessu. 100 þúsund tonn er mjög lítið,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.