Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Eftir mælingar á loðnustofninum í síðustu viku veitti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf um veiðar á allt að 61.000 tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021. Er það aukning um 39.200 frá fyrri ráðgjöf.

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, fór af stað til mælinga á sunnudag. Í dag fara svo þrjú skip frá útgerðum loðnuskipa til loðnuleitar og því munu samtals fjögur skip sinna mælingunum næstu daga. Auk þess eru tvö loðnuskip til viðbótar tilbúin að koma að verkefninu ef þörf verður á.

Veðurspá næstu daga auk spár um dreifingu hafíss úti fyrir Vestfjörðum gefur vonir um að það takist að fara yfir rannsóknasvæðið og að mæla stofninn að nýju á næstu dögum. Verður áhersla lögð á svæðið úti fyrir norðanverðum Austfjörðum, fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum en ekki hefur tekist að kanna þau svæði síðustu vikur sökum óveðurs og hafíss úti fyrir Vestfjörðum.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu:

„Það er mjög ánægjulegt að tekist hafi að afstýra að loðnubrestur myndi raungerast þriðja árið í röð. Þetta er vissulega ekki mikið magn en sú staðreynd að íslensk skip munu nú halda til veiða á loðnu er skref í rétta átt. Leitin heldur áfram af fullum þunga og í dag bætast þrjú skip við í þá leit. Það er enda mikið í húfi fyrir viðspyrnu efnahagslífsins að loðnuvertíðin verði eins öflug og kostur er.“