Sá hluti stofns íslenskrar sumargotssíldar sem ekki skilaði sér í rannsóknum í fyrrahaust er fundinn út af Snæfellsnesi. Vísbendingar bárust frá loðnuskipum fyrir um mánuði að síld væri að finna í Kolluál. Það var staðfest þegar Hafrannsóknarstofnun mældi þar rúmlega 200 þúsund tonn í síðustu viku. Síldin hefur áður haft vetursetu í Kolluál og á Látragrunni.

Guðmundur J. Óskarsson fiskifræðingur segir í samtali við Morgunblaðið að ef þessi síld hefði ekki skilað sér hefði þurft að taka tillit til þess í stofnmati, sem hefði síðan leitt til ráðgjafar um minni veiði. Stofnmatið og veiðiráðgjöfin verði nú væntanlega í meiri takti við það sem verið hefur síðustu ár, að sögn Guðmundar.