Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA segir að ólíklegt verði að dregið verði úr loforðum stjórnmálaflokka um milljarða útgjöld á næstu vikum. „[L]íklega fremur að bætt verði í,“ segir Ásdís í pistli á vef Samtaka atvinnulífsins um vinsældirnar sem flestir stjórnmálaflokkar hyggjast fá með því lofa auknum ríkisútgjöldum og meiri jöfnuði.

„Það virðist minna til vinsælda fallið að benda á tölulegar staðreyndir. Hér er tekjujöfnuður einn sá mesti meðal þróaðra ríkja. Þá er skattheimta og útgjöld hins opinbera í hlutfalli við landsframleiðslu nær hvergi hærri en hér á landi.“

Dusta rykið af 12 mánaða gömlum loforðum

Ásdís segir að fyrir síðustu kosningar hafi loforð flestra flokka gengið út á að hækka það hlutfall. „Nú styttist í kosningar og stjórnmálaflokkar eru í óðaönn að dusta rykið af 12 mánaða gömlum kosningaloforðum,“ segir Ásdís sem ætlar að í ár verði þetta gamalkunna stef endurvakið enn á ný.

„Öll viljum við efla heilbrigðiskerfið en fyrirheit um að auka þurfi opinber útgjöld til heilbrigðismála í 11% af landsframleiðslu, svo við verðum ekki eftirbátar annarra þjóða, er hins vegar mikil einföldun.

Viðbótarútgjöld fyrir tvisvar 100 milljarða

Tölur sýna að sé leiðrétt fyrir aldurssamsetningu þjóða, eru útgjöld til heilbrigðismála einna hæst hér á landi. Aldurssamsetningin mun hins vegar breytast og útgjöldin með, en slík framkvæmd nú auk afnáms greiðsluþátttöku myndi kosta ríkissjóð hátt í 100 milljarða króna á ári.

Heitið var að hækka lágmarksgreiðslur almannatrygginga í 300.000 krónur, tvöfalda barnabætur, lengja fæðingarorlofið, hækka hámarksgreiðslur fæðingarorlofs, byggja þúsundir leiguíbúða með ríkisstuðningi og auka stuðning við fyrstu kaup fasteigna. Í heild myndi sá loforðaflaumur kosta aðra 100 milljarða króna.“