Í gær var undirritaður í Nýju Delí loftferðasamningur milli Íslands og  Indlands að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands.

Guðmundur Eiríksson, sendiherra Íslands á Indlandi, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands og Madhavan Nambiar, ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins (Ministry of Civil Aviation), fyrir hönd Indlands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu en þetta er fyrsti samningur ríkjanna á þessu sviði.

Samningurinn heimilar flugrekendum ríkjanna að stunda áætlunarflug með farþega til tveggja ákvörðunarstaða í hvoru ríki auk áfanga- og viðkomustaða á flugleiðinni auk víðtækara heimilda fyrir fraktflug.

Samningurinn opnar einnig möguleika fyrir íslenska flugrekendur til að bjóða upp á leiguflug milli Íslands og Indlands.

„Samningurinn við Indland styrkir möguleika íslenskra flugrekenda sem hafa sinnt og vilja sinna verkefnum í þessum heimshluta,“ segir í tilkynningunni.

Á síðasta ári voru loftferðasamningar áritaðir við eftirtalin ríki: Víetnam, Kúveit, Aserbaídsjan, Túrkmenistan, Sýrland, Dóminíska lýðveldið og Tyrkland.

Þá gerðist Ísland í desember 2009 aðili að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem veitir íslenskum flugrekendum aukinn rétt til flugs milli Evrópuríkja og Bandaríkjanna.