Loftslagssjóður hefur úthlutað 165 milljónum króna til 32 verkefna í sinni fyrstu úthlutun. Að þessu sinni voru 22 kynningar- og fræðsluverkefni og 10 nýsköpunarverkefni styrkt. Alls námu styrkir til kynningar- og fræðsluverkefna um 99,3 milljónir króna og um 72,4 milljónir króna til nýsköpunarverkefna.

Sjóðurinn heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og er í umsjón Rannís. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.

„Það eru tímamót að nú sé í fyrsta skipti verið að úthluta styrkjum úr Loftslagssjóði til fræðslu og nýsköpunar í loftslagsmálum og það er virkilega gaman að sjá hversu fjölbreytt og flott verkefnin eru. Með þessu leitum við lausna með nýsköpun og gefum hugmyndaauðgi og framsýni byr undir báða vængi,“ er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra í tilkynningu ráðuneytisins í gær.

Þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr Loftslagssjóði en umsóknarfrestur rann út þann 30. janúar síðastliðinn. Alls bárust 203 gildar umsóknir og var heildarupphæð umsókna um 1,3 milljarðar. Sem fyrr segir voru 32 verkefni styrkt í þessari úthlutun eða um 16% umsókna.

„Það var mjög ánægjulegt að sjá hvað komu margar umsóknir. Það er greinilega mikil gerjun í loftslagsmálunum eins og við mátti búast. Umsóknirnar voru mjög fjölbreyttar og það var upplífgandi að sjá hvað margir eru að vinna í lausnum,“ sagði Hildur Knútsdóttir, stjórnarformaður Loftlagssjóðsins.

Listi yfir verkefnin sem fá styrk er að finna á vefsíðu Rannísar .