Loftorka Borgarnesi ehf. sagði í gær upp 66 af 120 starfsmönnum fyrirtækisins og miðar uppsögn  við næstu mánaðamót.

Flestir þeirra sem fengu uppsagnarbréf nú hafa þriggja til sex mánaða uppsagnarfrest, en sá tími ræðst af starfs- og lífaldri viðkomandi og sýnir að margir þeirra hafa starfað lengi hjá fyrirtækinu.

Á vef Skessuhornsins er haft eftir Óla Jóni Gunnarssyni að verkefni fyrirtækisins hafi dregist mikið saman á þessu ári og sérstaklega á síðustu vikum.