Alþingi samþykkti í nótt frumvarp viðskiptaráðherra um breytingar á lögum um gjaldeyrismál sem byggja á viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 3. nóvember síðastliðinn.

Með lögunum verður Seðlabanka Íslands, í samráði við viðskiptaráðherra, heimilt fram til 30. nóvember 2010 að setja reglur sem takmarka eða stöðva tímabundið tiltekna flokka fjármagnshreyfinga.

Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu er minnt á að undanfarnar vikur hafa gjaldeyrisviðskipti verið takmörkuð með sérstökum tilmælum Seðlabanka Íslands vegna skorts á gjaldeyri.

„Nokkur hætta er á, að óbreyttu, að mikið fjármagnsflæði verði úr landi um leið og skilyrði til gjaldeyrisviðskipta batna sem myndi leiða til verulegrar viðbótarlækkunar á gengi krónunnar,“ segir í tilkynningu viðskiptaráðs í tilefni þess að lögin voru samþykkt í nótt.

„Vegna skuldsetningar heimila og fyrirtækja getur slíkt valdið stórskaða fyrir efnahag þjóðarinnar og aukið á samdráttinn í efnahagslífinu.“

Fram kemur að með breytingu á lögum um gjaldeyrismál er Seðlabanka Íslands veitt tímabundin heimild til að takmarka tilteknar fjármagnshreyfingar sem ekki snerta viðskipti með vörur og þjónustu. Um leið er þó tekið mikilvægt skref til að aflétta hömlum á alþjóðaviðskiptum með vörur og þjónustu sem í raun hafa gilt undanfarnar vikur.

„Lögin eru nauðsynleg fyrsta aðgerð til að koma á eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum á Íslandi á ný og byggja undir stöðugt gengi krónunnar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

„Ennfremur er markmið laganna að lágmarka líkur á frekari gengislækkun og óstöðugleika. Heimild Seðlabanka Íslands er tímabundin og nær gildistími hennar til sama tíma og efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Þess er vænst að hömlur á fjármagnshreyfingar gildi í sem skemmstan tíma.“

Þá kemur loks fram að Seðlabanki Íslands mun birta nýjar reglur um gjaldeyrismál, á grundvelli endurskoðaðra laga, strax í dag.