Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti í dag beiðni Kers hf. og fleiri hluthafa í Festingu ehf. um að setja lögbann við því að Angus ehf. hagnýti sér þann rétt sem fylgir hlutafjáreign félagsins í Festingu. Jafnframt var lagt lögbann við því að Angus ehf. gæti framselt hluti sína til þriðja aðila. Lögbannið tekur gildi síðar í dag þegar lögð hefur verið fram 75 milljóna króna trygging af hálfu Kers hf.

Kristján Loftsson formaður stjórnar Kers hf segist fagna þessari niðurstöðu. ?Þetta er áfangasigur. Næsta skref okkar verður að höfða mál til ógildingar á hlutafjárhækkuninni í Festingu frá 18. mars sl. og jafnframt til staðfestingar á lögbanninu," segir Kristján. ?Við munum nú strax fara fram á það við stjórn Festingar að hún boði til hluthafafundar til að kjósa nýja stjórn í félaginu. Við vonum að stjórnin bregðist hratt og vel við þeirri beiðni," segir Kristján í tilkynningu frá Festingu.

Ekki var fallist á beiðni Kers hf. um að leggja lögbann við því að Landsbanki Íslands hf. hagnýti sér þann rétt sem fylgir handveðsyfirlýsingu er Angus ehf hefur gefið út til bankans vegna lánafyrirgreiðslu við kaup umræddra bréfa. Að áliti sýslumanns hafði ekki verið sýnt fram á að slík athöfn væri yfirvofandi af hálfu bankans.