Héraðsdómur Suðurlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að sýslumanninum á Selfossi beri að framfylgja kröfu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um lögbann á gjaldtöku Landeigendafélags Geysis að svæðinu. Í kjölfarið hefur Landeigendafélagið ákveðið að ákveðið að hætta gjaldtöku. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla.

„Niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands er landeigendafélaginu mikil vonbrigði. Dómur vekur upp spurningar um eignarrétt og getur tafið verulega fyrir nauðsynlegri  verndun og uppbyggingu á Geysissvæðinu sem er þegar á lista Umhverfisstofnunar um þau verndarsvæði sem eru í mikilli hætu á að tapa verðgildi sínu,“ segir í tilkynningu frá Landeigendum

Landeigendafélagið mun nú fara ítarlega yfir röksemdir dómsins og ákveða í framhaldi af því hver næstu skref félagsins í málinu verða.