Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti ekki lögbann það sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagði á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media upp úr gögnum eignarhaldsfélags Glitnis frá því 16. október í dag.
Sýknaði dómurinn fjölmiðlana af kröfum Glitnir um að þeim verði óheimilt að birta eða fá fréttir eða aðra umfjöllun sem byggð er á eða unnin upp úr gögnum úr fórum eða kerfum Glitnis.
Jafnframt dæmdi héraðsdómur að Útgáfufélag Stundarinnar ehf. og Reykjavík Media ehf. fengju hvort um sig greiddar 1,2 milljónir króna upp í málskostnað félaganna.
Mikil umræða fór af stað vegna lögbannsins sem kom í aðdraganda kosninganna og fjallaði Viðskiptablaðið ítarlega um málið og viðbrögð við því:
- 16. október - Glitnir vill lögbann á Stundina
- 17. október - Gagnrýna lögbann á gögn Glitnis
- 17. október - Fréttamenn fordæma lögbann á notkun gagna
- 18. október - Krefjast afnáms lögbanns Sýslumanns
- 24. október - Fara fram á lögbann á fleiri miðla