Lögfræðistofa Reykjavíkur hefur skilað Landsbanka Íslands umboði til að annast hagsmunagæslu fyrir nefndina vegna málefna Exista. Í tilkynningu segir að með þessu vilji Lögfræðistofa Reykjavíkur stuðla að frið um störf skilanefndarinnar.

Formaður skilanefndar Lárentsínus Kristjánsson er einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur og hefur aðkoma hans og stofunnar verið gagnrýnd. Ekki er ljóst hver tekur yfir innheimtumál skilanefndarinnar.