Logi Einarsson, varaformaður Samfylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Logi er arkitekt og einnig bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri.

Annað sæti listans skipar Erla Björg Guðmundsdóttir, sem er viðskiptafræðingur og ferðamála- og búfræðingur - hún býr einnig á Akureyri. Í þriðja sæti listans er Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri og bæjarfulltrúi á Seyðisfirði. Í því fjórða er Bjartur Aðalbjörnsson, leiðbeinandi og nemi frá Vopnafirði.

Í nýjasta þjóðarpúls Gallup mælist fylgi Samfylkinginarinnar nálægt 8%.