Lögmaður liggur þungt haldinn á spítala eftir hnífstunguárás í morgun. Ráðist var á tvö lögmenn í Lágmúla rétt eftir kl. 10 í morgun.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins voru lögmennirnir sem ráðist var á starfsmenn lögfræðistofunnar Lagastoð. Samkvæmt sömu heilmildum stóð árásarmaðurinn í innheimtumáli gagnvart stofunni.

Ekki verður greint frá nafni lögmannanna að svo stöddu.