Lögmenn Lækjargötu hafa opnað nýja skrifstofu sína í Lækjargötu 2. Lögmannsstofan starfaði áður undir nafninu GHP Legal, en kennir sig nú við starfstöð sína samkvæmt gamalli íslenskri hefð. Þá hefur Sigurður Kári Kristjánsson héraðsdómslögmaður gengið til liðs við Lögmenn Lækjargötu sem einn eigenda stofunnar. Sigurður Kári hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1999. Hann starfaði á Lögmannsstofunni Lex frá árinu 1998 til 2003. Hann var alþingismaður á árunum 2003- 2009 og 2010–2011 og hefur jafnframt verið aðstoðarmaður formanns Sjálfstæðisflokksins. Aðrir eigendur Lögmanna Lækjargötu eru þeir Birgir Tjörvi Pétursson héraðsdómslögmaður, Guðmundur H. Pétursson héraðsdómslögmaður, Ingvi Hrafn Óskarsson héraðsdómslögmaður, og Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður