LMFÍ er ósátt við breytingu sem stendur til að gera á lögum um sölu á fasteignum og skipum.

Verði frumvarpið að lögum, með breytingartillögu efnahags- og viðskiptanefndar , munu lögmenn eftirleiðis þurfa að þreyja próf til að öðlast réttindi á við löggilda fasteignasala.

Í umsögn LMFÍ segir m.a. að „þekking lögmanna á vandasömum álitamálum sem tengjast viðskiptum sé langt umfram þær kröfur sem gerðar eru til löggiltra fasteignasala. Reyndar er það svo að í hlut lögmanna kemur iðulega að leysa úr ágreiningsmálum sem varða fasteignakaup og bera undir dómstóla."