Karl Georg Sigurbjörnsson
Karl Georg Sigurbjörnsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Landsbanki Íslands, þ.e. hinn endurreisti Landsbanki, hefur stefnt lögmönnunum Birni Þorra Viktorssyni hrl. og Karli Georg Sigurbjörnssyni hrl. ásamt félaginu L-85 ehf. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 5. september nk. samkvæmt dagskrá dómsins. Málið snýst um að bankinn telur Björn Þorra og Karl Georg skulda bankanum vegna lána sem þeir voru í ábyrgðum fyrir. Björn Þorri og Karl Georg reka saman lögmannsstofuna Lögmenn Laugardal.