Fjölmiðillinn Víkurfréttir greinir frá því á heimasíðu sinni í dag að Lögreglan á Suðurnesjum hafi nýverið stöðvað starfsemi svokallaðrar Airbnb heimagistingar í umdæminu þar sem engin rekstrar- eða starfsleyfi hafi reynst vera til staðar. Var því um að ræða brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Lögregla mun á næstunni heimsækja fleiri staði þar sem heimagisting er auglýst á Airbnb og athuga hvort tilskilin leyfi séu til staðar.