„Börnin eru ennþá í hverfinu þó að skólar séu komnir í sumarfrí,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar hjá lögreglunni í Reykjavík. Guðbrandur minnir ökumenn á að aka gætilega vegna þess að börn eru á leikjanámskeiðum við skólana eða allan daginn að leika sér úti við götur í íbúðahverfum. „Inni í íbúðahverfum er þrjátíu kílómetra hámarkshraði og það ber ávallt að virða hann.

Svæðisstöðvar lögreglunnar fylgjast með sínum hverfum og síðan förum við líka inn í íbúðahverfin, sama hvort það er á skólatíma eða ekki og höldum uppi hefðbundnu eftirliti.“

Viðurlögin við því að keyra á 50 kílómetra hraða í götu með 30 kílómetra hámarkshraða er 15 þúsund króna sekt. Sú sekt hækkar upp í 20 þúsund sé keyrt á 51-55 kílómetra hraða við sömu götu og sé keyrt á 60 kílómetra hraða þá hækkar sektin í 45 þúsund krónur og ökumaður fær 3 mánaða ökuleyfissviptingu.