Kauphöllin hefur lokað fyrir aðgang Straums að viðskiptakerfi Kauphallarinnar en í morgun barst tilkynning frá bankanum til Kauphallarinnar þar sem fram kemur að fjárhagsstaða félagsins hafi versnað svo mjög að óvíst sé að bankinn geti sinnt skyldum sínum í samræmi við ákvæði aðildarreglna NOREX kauphallanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.