Vegna óvenjulegra markaðsaðstæðna hefur Kauphöllin ákveðið að áfram verði lokað fyrir viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni í dag.

Opnað verður fyrir hlutabréfaviðskipti á morgun, 14. október.

Opið verður fyrir viðskipti á skuldabréfamarkaði Kauphallarinnar í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en þetta er þriðji dagurinn í röð sem lokað er fyrir hlutabréfaviðskipti þar sem lokað var s.l. fimmtudag og föstudag.