Lokað hefur verið fyrir viðskipti með hlutabréf Kaldbaks hf., Samherja hf. og Burðarás hf., vegna væntanlegrar fréttar. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Vangaveltur fóru þegar af stað á markaði um að félögin væru að sameinast um kaup á stóru fyrirtæki en slíkt hefur ekki fengist staðfest.