Bláa Lónið og athafnasvæði þess verður lokað frá 23. apríl til og með 27. apríl 2017 vegna framkvæmda við jarðsjávarlögn, þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Samkvæmt hennir var á kvörðun um lokunartímabilið tekin í október á síðasta ári og var þá þegar lokað fyrir bókanir á umræddu tímabili. Verslun og veitingastaðir í Bláa Lóninu munu einnig loka á tímabilinu ásamt Silica hóteli. Starfsemin opnar aftur þann 28. apríl.

Að sögn fyrirtækisins er framkvæmdin mikilvægur þáttur í nýframkvæmdum Bláa Lónsins, en ný heilsulind sem mun bera heitið Lava Cove verður tekin í notkun í haust ásamt hóteli sem verður starfrækt undir nafninu Moss Hotel. Lögnin mun flytja jarðsjó inn á lónsvæði heilsulindarinnar og hótelsins.

Framkvæmdum miðar að sögn vel áfram og mun þeim ljúka í haust þegar hin nýja heilsulind og hótel verða tekin í notkun.