Vegna endurnýjunar á verslunarrými Zara í Smáralind verður versluninni lokað tímabundið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Ný og endurbætt verslun verður opnuð aftur í október. Zara verður með rýmingarsölu í Smáralind þar sem allt á að klárast. Hún hefst fimmtudaginn 20. júlí. Verslun Zara í Kringlunni verður áfram opin.