Varðskipið Týr lagðist að bryggju í Reykjavík klukkan 10 í morgun eftir eina lengstu ferð varðskips hér við land hin síðari ár. Þegar skipið hélt til eftirlits í byrjun mars var gert ráð fyrir því að það yrði á Íslandsmiðum í þrjár vikur, venju samkvæmt. Vegna aukinna varúðarráðstafana var ákveðið að lengja ferðir varðskipa Landhelgisgæslunnar til að tryggja að hægt væri að sinna órofnu eftirliti á hafinu umhverfis landið.

Thorben Lund, skipherra á Tý, segir ferðina hafa gengið vel og fjölbreytt verkefni komið á borð áhafnarinnar.

Við komuna til Reykjavíkur í morgun stillti áhöfnin á Tý sér upp fyrir myndatöku ásamt Jóni Marvin Pálssyni og Ragnari Marel Georgssyni, liðsmönnum, séraðgerðasveitar, sem tóku á móti skipinu á Miðbakka.