London var algengasti áfangastaður flugvéla frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í september. Kaupmannahöfn var vinsælasta flugleiðin í júlí og ágúst en umferð þangað þyngist vanalega á sumrin. Túristi.is greinir frá þessu í dag.

Samtals voru 1.566 áætlunaflug sem fóru frá Leifsstöð í september, þar af voru 152 til London, 128 til Kaupmannahafnar og 109 til New York.