Losun koltvísýrings frá einkennandi greinum í ferðaþjónustu fór fram úr losun fyrirtækja í framleiðslu málma árið 2016 en losun koltvísýrings frá greinum í ferðaþjónustunni hefur ríflega fimmfaldast frá árinu 1995. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Losun fyrirtækja í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu árið 2016 er aftur á móti helmingi lægri en árið 1995.

Losun frá málmvinnslu árið 2016 var fjórum sinnum meiri en árið 1995. Losun jókst umtalsvert árin 1998 og 2008 í samræmi við fjölgun fyrirtækja í greininni.

Losun kemur fyrst og fremst frá flugi

Í einkennandi greinum ferðaþjónustu kemur losun CO2 fyrst og fremst frá flugi, en umsvif íslenskra flugfélaga hafa vaxið mjög ört síðustu sex ár.

„Losunin hefur beina fylgni við fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll. Frá 2012-2013 jókst fjöldi farþega um Keflavík jafnt og losun, eða 14%. Á árunum 2015-2016 fjölgaði farþegum um Keflavíkurflugvöll nær 35%. Losun frá greininni jókst um 36%. Þessi fylgni er hins vegar að hluta til tilviljun. Nokkur hluti farþega um Keflavíkurflugvöll ferðast með erlendum flugfélögum, sem telstjast ekki með í AEA tölunum. Á sama tíma hafa umsvif íslenskra flugfélaga án viðkomu í Keflavík aukist," segir í fréttinni.

Losun frá heimilum á einstakling náði hámarki í 2007

Losun frá íslenskum heimilum árið 2016 var 30% hærri en árið 1995, en hefur verið á bilinu 540 til 600 kílótonn CO2 frá 2008. Losun frá heimilum er fyrst og fremst vegna aksturs en einnig er tekið tillit til notkunar eldunargass, hitunarolíu og flugelda. Flug, strætóferðir, sorplosun, notkun rafmagns og jarðvarma telur ekki inn í losun heimila, heldur reiknast á viðeigandi atvinnugreinar.