Losun gróðurhúsalofttegunda á árinu 2009 á Íslandi var 4,6 milljónir tonna CO2-ígilda (Koltvíoxíð) og dróst saman um 5% frá árinu áður. Samkvæmt skýrslu Umhverfisstofnunar um losun gróðurhúsalofttegundanna frá árinu 1990-2009 má minnkun milli ára einkum rekja til minni myndunar PFC í álverum vegna betri framleiðslustýringar, minni losunar vegna byggingastarfsemi og vegna minni sementsframleiðslu. Tvö síðarnefndu atriðin má rekja til kreppunnar. Losun vegna fiskveiða jókst hins vegar frá árinu 2008.

Samkvæmt spám Umhverfisstofnunar mun Ísland standa við sínar skuldbindingar gagnvart Kyoto-bókuninni. Ísland er skuldbundið til þess að halda sig innan marka varðandi losun gríðurhúsalofttegunda.

18,5 milljóna tonna heimild

Á fyrsta skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar frá 2008 til 2012 nema losunarheimildir Íslands rúmlega 18,5 milljónum tonna CO2-ígilda. Þetta jafngildir því að árleg losun skuli að meðaltali nema um 3,7 milljónum tonna. Samkvæmt íslenska ákvæðinu (14/CP.7 við Kyoto-bókunina) er Íslandi þó heimilt að halda losun frá nýrri stóriðju eða stækkun stóriðjuvera utan við losunarskuldbindingar sínar eftir að losunarheimildir hafa verið fullnýttar.

Heildarmagnið sem halda má utan við losunarheimildirnar nemur samtals 8 milljónum tonna á fyrsta skuldbindingartímabilinu, eða að meðaltali 1,6 milljónum tonna á ári. Sérstakar reglur gilda um hvaða losun falli undir íslenska ákvæðið. Einnig er mögulegt að kaupa heimildir á kolefnismörkuðum og að fá úthlutað sérstökum heimildum vegna þátttöku í verkefnum á sviði loftslagsvænnar þróunaraðstoðar og/eða vegna bindingar kolefnis með landgræðslu og skógrækt.

Úr tilkynningu Umhverfisstofnunar:

„Árið 2009 nam heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi  4,6 milljónum tonna CO2-ígilda.Þar af falla 1,2 milljónir tonna undir íslenska ákvæðið. Losun utan við íslenska ákvæðið, var því samtals rúmlega 3,4 milljónir tonna. Fyrirfram var búist við því að losun árið 2009 yrði minni en árið 2008 vegna kreppunnar og eins vegna þess að gert var ráð fyrir að draga myndi úr losun PFC frá Fjarðaáli sem komst í fulla framleiðslu árið 2008 (losun frá Fjarðaáli var því há árið 2008). Tveir flokkar losunar eru langstærstir hérlendis og nam losun frá þeim árið 2009 samtals 64% af heildartölunni. Losun vegna iðnaðar og efnanotkunar er samtals 44% og vegna samgangna 20% eins og sjá má á eftirfarandi mynd.

Í loftslagssamningnum eru allar tölur miðaðar við árið 1990 sem grunnár. Losun það ár var 3,4 milljónir tonna CO2-ígilda og hefur hún því aukist um 35% á tímabilinu 1990 til 2009. Mest hefur aukningin verið frá áliðnaði (142%) og vegasamgöngum (69%). Talsverð aukning hefur einnig verið vegna meðhöndlunar úrgangs sem og vegna rafmagns- og hitaframleiðslu.  Losunin hefur hins vegar dregist saman um 17% í sjávarútvegi og um 6% í landbúnaði.“