Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði í gær formlega nýja skrifstofu LS Retail í Dubai. Nýja skrifstofan mun verða miðstöð þjónustu og sölustarfs LS Retail á þessu svæði. Opnunin fór fram við sérstaka móttöku á Burj Al-Arab að viðstöddum fulltrúum fjölmiðla auk fjölmargra viðskiptavina og samstarfsaðila.

Forsetinn sem er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum (SAF) í tengslum við Heimsþing um hreina orku þekktist boð LS Retail um að sækja opnunarmóttökuna og er það til marks um aukið vægi viðskiptatengsla Íslands við SAF. Jafnframt styrkir opnunin stöðu SAF sem alþjóðlegrar viðskiptamiðstöðvar. Þau svæði sem heyra undir skrifstofuna í Dubai eru Miðausturlönd, Afríka og Indland. Dubai er nú í öðru sæti á eftir Lundúnum yfir borgir með hæst hlutfall alþjóðlegra fyrirtækja í verslunarrekstri samkvæmt skýrslu alþjóðlega fasteignaþjónustufyrirtækisins CBRE.

„LS Retail hefur náð mjög góðri fótfestu í þessum heimshluta og hefur í hyggju að auka útbreiðslu hugbúnaðar síns fyrir verslanir, veitingarekstur og snjalltæki. Við erum því afar sátt við að Dubai hafi fengið heimssýninguna Expo 2020, enda má þegar greina mikla eftirvæntingu á svæðinu“, segir Magnús Norðdahl, forstjóri LS Retail. „Meira en helmingur smásöluverslana í Miðausturlöndum notar nú þegar lausnir frá LS Retail og við höfum þannig tekið þátt í uppgangi Dubai í alþjóðasamhengi og hyggjumst styrkja stöðu okkar til framtíðar með þessari skrifstofu,“ segir í tilkynningu frá LS Retail.

„Næstu þrjú ár verða helstu verslunarmiðstöðvar í furstadæmunum stækkaðar verulega,“ segir Waddah Laham, svæðisstjóri LS Retail í Miðausturlöndum, Afríku og Indlandi. „Fyrir árið 2018 verða að auki byggðar margar nýjar, sem ætla má að laði að sér fjölda nýrra fyrirtækja og verslana. Smásöluverslun er enn á uppleið á því svæði sem nýja skrifstofan í Dubai þjónar og mun blómstra á næstu árum.“

LS Retail hefur um tveggja áratuga skeið þróað hugbúnaðarlausnir fyrir verslanir og veitingarekstur. Um 150 samstarfsaðilar í yfir 60 löndum sjá um að þjónusta lausnirnar sem eru í notkun í um 46.000 verslunum um allan heiminn.