Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) keypti í dag 4.000.000 hluti í Reitum og nemur eignarhlutur sjóðsins í fasteignafélaginu nú 10,47%. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kaupverðið nemur 253,2 milljónum króna, sé miðað við núverandi gengi Reita í Kauphöllinni. Eftir kaupin á LSR 79 milljónir hluta í fyrirtækinu og má áætla að hluturinn sé um 5 milljarða króna virði.

Gengi hlutabréfa Reita hefur lækkað um 0,63% í 263 milljóna króna veltu það sem af er degi.