Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hefur bætt við sig hlutum í Vátryggingafélagi Íslands og er nú kominn með 5,31% hlutafjár í félaginu.

Í flöggun til Kauphallarinnar kemur fram að sjóðurinn hafi í dag keypt 18,8 milljónir hluta í VÍS og ef gert er ráð fyrir að kaupgengi hafi verið 9,97 krónur á hlut þá nam kaupverðið 187,9 milljónum króna.

Fyrir kaupin átti LSR 114,1 milljón hluta í félaginu og á nú eftir kaupin 133 milljónir hluta.