LSR með 9,1% raunávöxtun í fyrra Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var 14,2% sem svarar til 9,1% hreinnar raunávöxtunar. Tekjur af fjárfestingarstarfsemi voru 54,4 milljarðar króna og heildareignir LSR voru 436,6 milljarðar króna í árslok 2012, að því er kemur fram á vefsíðu sjóðsins.
Undanfarin þrjú ár hafa eignir LSR aukist um 108,2 milljarða króna. Það má að stærstum hluta rekja til ávöxtunar sjóðsins því á sama tíma hafa tekjur af fjárfestingum numið 96,6 milljörðum króna.
Í árslok 2012 var 58,7% af eignum sjóðsins í innlendum skuldabréfum, þar af 36,9% í skuldabréfum með ríkisábyrgð, 4,9% í innlendum hlutabréfum, 29,8% í erlendum verðbréfum, einkum hlutabréfum, 5,7% í innlánum og 0,9% í öðrum fjárfestingum.
Ábyrgð ríkissjóðs nemur 366 milljörðum króna
Nafnávöxtun A-deildar LSR var 13,1% á árinu 2012 sem svarar til 8,1% hreinnar raunávöxtunar. Heildareignir A-deildar námu 218,4 milljörðum króna í lok árs 2012. Samkvæmt tryggingafræðilegu mati var áfallin staða A-deildar neikvæð um 7,6 milljarða eða 3,3%. Heildarstaða A-deildar var neikvæð um 60,9 milljarða eða 12,5%.
Nafnávöxtun B-deildar sjóðsins var 15,5% á árinu 2012 sem svarar til 10,4% hreinnar raunávöxtunar. Heildareignir B-deildar námu 208 milljörðum króna í lok árs 2012. Áfallin skuldbinding B-deildar í árslok 2012 var 573 milljarðar og hækkaði hún um 5,4% á árinu. Samkvæmt útreikningi tryggingafræðings eiga ríkissjóður og aðrir launagreiðendur að standa undir 243,7 milljörðum króna af skuldbindingum B-deildar með greiðslu lífeyrishækkana. Skuldbindingar sem deildin á sjálf að standa undir eru því 329,3 milljarðar króna. Samkvæmt efnahagsreikningi var hrein eign B-deildar til greiðslu lífeyris í árslok 208 milljarðar króna. Mismunurinn á skuldbindingum og hreinni eign er á ábyrgð ríkissjóðs. Mismunurinn samkvæmt þessu er 366 milljarðar króna sem er á ábyrgð ríkissjóðs.