Það mat liggur fyrir að líklegasta leiðin til að skila kröfuhöfum mestum árangri sé að leita leiða til að halda starfrækslu félagsins áfram og bíða betri tíma til að hámarka verðmæti eigna.

Af þessu leiðir að ýmsir kröfuhafar og ráðgjafar sem að málinu hafa komið telja rétt að skoða stöðu félagsins til hlítar og hvort ekki séu meiri möguleikar á endurheimt krafna með áframhaldandi starfrækslu þess þó svo að það verði mögulega með mjög breyttu sniði.

Þetta kemur fram á vef Landssamtaka lífeyrissjóða (LSS)þar sem fjallað er um málefni Exista en sem kunnugt er hefur töluvert verið fjallað um fjárhagsvandræði félagsins. Fram kemur að forsvarsmenn LSR  hafi í samstarfi við aðra kröfuhafa, jafnt innlenda sem erlenda, verið að skoða stöðu félagsins og að í þeirri vinnu hafi LSR lagt áherslu á endurheimt krafna og að finna réttmætt mat á stöðu félagsins.

„Þessari vinnu er ekki lokið og af hálfu LSR og annarra lífeyrissjóða sem að málinu hafa komið, hefur ekki verið lokað á neinar leiðir,“ segir í umfjölluninni.

„Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum eru skuldir Existu verulegar en á móti eru verðmætar og mikilvægar eignir, en þær eru helstar Síminn, VÍS, Lífís og Lýsing. Þá er margt óljóst um stöðu félagsins vegna óuppgerðra samninga þess og annarra flókinna tengsla þess við gömlu bankana.“

Þá segir einnig:

„Hjá Exista, og reyndar fleiri sambærilegum félögum, hafa innlendir og erlendir kröfuhafar m.a. skoðað leiðir sem gefa svigrúm til að endurskipuleggja reksturinn og jafnframt tíma og möguleika til að meta gildi ýmissa gerninga félagsins með tilliti til riftanleika og einnig gildi krafna á hendur því. Liður í þessu ferli væri aukin og skýr aðkoma kröfuhafa að nauðsynlegu umbreytingarferli. Allir aðilar hafa verið sammála um að skera þurfi verulega niður rekstrarkostnað og gera margs konar breytingar á starfsemi félagsins. Að lokinni endurskipulagningu og aukinni aðkomu kröfuhafa að félaginu yrði kosin ný stjórn sem ræki félagið áfram með það eitt að markmiði að hámarka endurgreiðslur lána.“

Sjá nánar á vef LSS.