Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokk, LSS150224.

Í tilkynningu kemur fram að Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 2 milljarðar króna að nafnvirði. Þá áskilur Lánasjóðurinn sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Eftirfarandi bönkum og verðbréfafyrirtækjum hefur verið boðið að gera tilboð: Byr Sparisjóður, H.F. Verðbréf, Íslandsbanki, Íslensk verðbréf, Jöklar Verðbréf, NBI, Nýi Kaupþing, MP Banki, Saga Capital Fjárfestingarbanki, VBS fjárfestingarbanki og Virðing.

Útboðsfjárhæð verður sem fyrr segir tveir milljarðar króna en lágmarkstilboð eru hundrað milljónir króna. Lánstíminn er til 15. febrúar 2024 eins og nafnið á flokknum gefur til kynna.

Fastir vestur eru 3,75% en grunnvísitala er verðtryggð með vísitölu neysluverðs í október 2008, þ.e. gildi 312,8.