Lúðvík Elíasson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa hjá Seðlabanka Íslands. Lúðvík var áður yfirmaður greiningardeildar MP banka en hætti þar störfum um mitt síðasta ár. Undanfarið hefur hann starfað fyrir Viðskiptaráð Íslands.

Hjá Seðlabankanum mun Lúðvík starfa innan fjármálastöðugleikasviðs. Það er nýtt svið innan bankans. Sigríður Benediktsdóttir er framkvæmdastjóri sviðsins.